Velkomin á bloggið mitt

Bloggsíða Ölmu

04.08.2008 22:56:51 / gellan

Jæja blogg blogg blogg;)

Hæhæ. Núna ætla ég að blogga eithvað smá:) Já ég ætla að halda smá áfram með Mallorca ferðina:) En við fórum á Sæljóna og Höfrunga sýningu og það var ekkert smá gaman. Sæljónin voru alltaf að gera eithvað flott, svo þegar að fólkið var að klappa fyrir þeim klöppuðu þau líka algjörir bjánar hehe, svo voru höfrungarnir líka ægilega sætir og klárir:) þeir gerðu líka allskonar kúnstir:) Og þeir voru svo flottir hehe:) En svo á ég á afmæli á morgunn þann 5. ágúst og ég hlakka ekkert smá til. En í sumarfríinu erum við Lena bara búnar að vera að passa Hreiðar Örn og stundum Árna Jóhann líka + Tinna og Böster:) En það er mjög gaman. En Berglind kærasta Ingvar Freyrs var að eiga annan ágúst það var lítill strákur ég óska þeim innilega til haminjgu með hann:)En svo veit ég ekki hvað ég á að segja meira;)

Kveðja Alma pössunarpía;) 

» 11 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 16:24:27 / gellan

Mallorca ferðin:)

Hæhæ tími til komin að blogga:) Ég ætla að segja smá frá Mallorca ferðinni. En sem sagt 28 Maí fórum við til Mallorca það var rosalega gaman að fljúga í þotu :) Og þegar við lentum fórum við í svona stóran strætó sem keyrði okkur upp að flugvellinum eða þar sem maður fer inn. Svo kom rútu og keyrði okkur að hótelinu. Þetta var 4 stjörnu hótel sem heitir Royal Cristina, ég mæli sko með þessu hóteli það er risa stór sundlaugargarður fyrir utan hótelið:) Svo einhvern daginn fórum við í Magaluf þar er rennibrautagarður í Aqualandi og við fórum í hann. Hann er sko snilld rennibrautirnar eru ógeðslega stórar og gaman að renna í þeim:) og svo fórum við í veitingarstað sem ég veit ekki hvað heitir, en það er þjónn þar sem er nákvæmlega eins og Ingvar Freyr ;) En svo síðasta daginn lenti ég í smá óhappi,, ég hrakfallabálkur hehe, en ég hljóp á svalahurð sem er eiginlega bara rúða og ég skarst á kálfanum, hnénu og lærinu:( það var ekkert smá vont:S En við fórum svo upp á svona spænska heilsugæslustöð og þar var saumað samtals 10 spor í fótinn á mér:( 5 í lærið, 4 í kálfann og 1 í hnéið:S En annars er ég búin að segja aðeins frá þessari óhappa Mallorca ferð hehehe:) Kveðja Alma Rún:)

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 11:42:13 / gellan

Mallorca og fleira

Hæhæ öll sömul.... það er svolítið langt síðan að ég bloggaði. Núna skal ég blogga smá:) Við erum að fara að keyra suður eftir smá stund og svo á morgunn erum við að fara til Mallorca:D Ég hlakka svo mikið til ég er að farast hehe, þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer til útlanda:) En á laugardaginn fór ég í vatnsslag við Árna sem á Týru það var geðveikt stuð,,, hann rústaði mér að sjálfsögðu hehe:) En svo er ég stundum að passa Týru og þrífa fyrir þau og Magga og Árni voru að gefa mér 5000 krónur:)  Svo í sumar er ég og Lena að fara passa Hreiðar Örn og Árna Jóhann það verður stuð,,,, en ég ætla bara að skemmta mér vel í sumar hehe:)

Kveðja Alma Rún


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 15:58:39 / gellan

Loksins blogg:)

 

Heil sæl öll sömul hehe;) hér kemur smá blogg loksins. Mamma fór í aðgerð 11 febrúar:( og er eiginlega nýbúin að geta farið að vinna :) En eins og er gengur mjög vel í skólanum hjá mér og ég er búin að fá 10 á tveimur enskuprófum:) snilli;) og svo fer ég alltaf út með cavalier hund sem heitir Bjarmi og er algjört krúttJ Siggi og Helena sem búa í móti okkur eiga hann. Ég er að hugsa um að ættleiða hann bara hehehe;) nei nei seigi svona hehe;) Svo eru Magga og Árni í Reykjavík núna eða eru reyndar að keyra til akureyrarJ ég hlakka ekkert smá til að hitta þau og Týru. En segjum þetta gott í bili

 

Kv. Alma


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 21:44:12 / gellan

Hæhæ, og loksins blogg:)

Hæhæ. Sko byrjum á jólunum;) Ég ætla að telja upp það sem ég fékk í jólagjöf:)

 

Mamma, pabbi og Lena: Rúlluskór

Kristján og Birgitta: Næturvaktin

Amma Oddný og Afi Jakob: sparkz peysa

Villi, Ýr og Linda Björk: high school musical-dvd

Aníta og Unnar: konfekt

Petra og Sara: Bolur

Siggi og Sigrún: Náttföt

Amma Rósa og Afi Kristján: Fiðrilda hálsmen

Amma Guðveig og Afi Kjartan: Rúmföt

Árni Jóhann og Hreiðar Örn: vettlingar

Guðmundur Arnar og Kristján Helgi: Gríma til þess að mála

Márus (köttur) babúskur svona kellur;)

Amma Stebba: Inniskór og símaskraut.. held að það sé allt komið,.... Jæja núna ætla ég að blogga pínu:)

OKI. en við erum búin að kaupa okkur nýjan bíl hann er geggjað flottur maður, þetta er sko mazda 6 sport allgjör sportbíll;) Svo átti Sara Yassmine afmæli þann 4 Janúar og varð 3 ára vá hvað þetta er fljótt að líða;) og svo er skólinn byrjaður aftur:S en það gengur mjög vel hjá mér. Ég veit ekkert hvað ég á að seija en það kemur seinna meira blogg. Kveðja Alma Rún

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 18:55:00 / gellan

ÉG er snillingur;)hehe

Hææ.. Jæja pínu pons blogg;) ÉG veit ekkert hvað ég á að seija en það kemur pínu hér. Byrjum á skóladeginum. En ég Var sú eina sem var með allt í margföldunarprófi ég fékk viðurkenningu frá kennaranum. ÉG var geðveikt glöð:D:) þetta var eiginlega bara besti skóladagurinn sem ég hef verið í;) og svo átti pabbi afmæli í gær til hamingju með það pabbi og það var geðveikt gaman við gáfum honum mjög flottan síma í afmælisgjöf hann var ekkert smá glaður að fá hann:). . Svo er ég alltaf að passa Týru það er hundur. ÉG fer á hverjum degi út að labba með hana það er ekkkert smá gaman hehe;)

En veit ekki hvað ég á að seija meira kveða að sinni;)

Kv Alma


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 20:17:21 / gellan

hér kemur sætasti strákur ever það er .......;)

enginn annar en Jógvan hehe

Jógvan að syngja svooo sætur:)

Jésús hvað hann er sætur;)

en kemur meira seinna ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 15:27:39 / gellan

Loksins blogg:)

Halló halló:) Núna kemur skoo smá blogg frá mér:) jæja þann fimmta september hélt ég uppá bekkjarafmælið mitt það var allgjör snilld sko.. Við fórum í marga leiki.. Við fórum í leik sem maður átti að drekka volgt vatn úr tveggja líters flösku og svo átti maður að vera með tening og átti að reyna að fá 6 og það ældu 3 krakkar, ég, Ríkey og Kalli :o svo fórum við í limbó og ég vann hehe:) i´m great;) og Ríkey í öðru sæti og HILMIR í 3 sæti dísess hvað hann er liðugur;) og Petra og Sara eru núna fluttar til okkar sem er geðveikt;) og svo í gær þá fórum við Lena að kaupa nammið okkar klukkan 23:50 hehe pínu seint skoo og við fórum að sofa klukkan korter í tvö að nóttu hehe,,,, En hef ekkert meira að seija bæbæ(K) kveðja Alma        Mynd af Jógvani;)

\"\"


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 16:19:53 / gellan

Losksins blogg:):):)

Hæjj allir.... Jæja ég skal nú blogga pínu:) Þann 5.ágúst þá átti ég 10 ára afmæli ég fekk sko  20.000 kr. Og svo Peysu, Diesel buxur frá mömmu og pabba geðveikt flottar;) svo fékk ég rúmföt frá Petru, kjól frá Lenu og svo sumarbol og húfu með deri á hliðini frá Villa og Ýr, og svo daginn eftir þá fórum við Lena með Söru og Petru til Rvk það var svo gaman í þar:)

ég fór með Söru í veröldina okkar í smáralindinni það var mjög gaman;). svo fórum ég, Lena, Ingibjörg,Petra og Sara litla í sund það var ´líka gaman þar við fórum í Mosfellsbæjarsundlaug og þar voru þrjár rennibrautir þar og tvær voru stórar og ein lítil þær voru appelsínugul, græn og rauð á litin og í appelsínu gulu þá voru voru svona rendur inní henni það var geðveikt flott en maður meiddi svolítið í bossanum á eftir;) af því að það voru rendur sem maður rendi á og það ekkert sérlega gott:$ Svo daginn eftir fórum við í Húsdýragarðinn og það var mjög gaman þar.... Við sáum Sveppa sem var í strákunum:) hann er sæ... hehe og við fórum í mörg tæki það var geðveikt gaman þar svo þegar að við vorum búin í húsdýragarðinum þá fórum við Lena í flug til Akureyrar uuhhhu það var samt gaman í flugvélinni en ég var svolítið hrædd af því að hún hristist pínu eins og ég er nú pínu hrædd í flugvél:Shehe segum þetta gott núna blogga meira seinna bæbæ

Kv Alma sæta;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 14:37:43 / gellan

æææiiiii

Hæhæ ég var búin að blogga geðveikt mikið svo datt það alllt út ohhh:evil: en það kemur einhvern tímann smá blogg ;) sjáumst;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 23:16:08 / gellan

Váá löt eða;)

Hæhæ. Sorry hvað það er langt síðan ég bloggaði seinast:S Þann 8. júní fórum við fjölskyldan + Hildur í Egilsstaði og það var mjög gaman:)Laufey, Jobbi og Róbert komu líka og voru yfir helgina hjá okkur og það var líka mjög gaman:)Ég, Lena og Hildur fórum í sund á sunnudeginum og það var geðveikt stuð á okkur þar:)En það var ein mjög svo leiðinleg stelpa sem var þarna og var alltaf að reyna að taka af okkur dótið sem við vorum með og hún fór bara eitthvað að rífa kjaft við okkur og skvetta á okkur og eitthvað og Lena sagðist ætla að drekkja henni ef hún hætti ekki að vera svona ógeðslega leiðinleg, hehe:)Þannig að hún hætti í smástund en kom svo alltaf aftur og vá hvað við vorum orðnar pirraðar á henni maður:S Svo var trampólín þarna og ég, Lena og Hildur við vorum alltaf að hoppa á því og það var geðveikt gaman. Svo nokkur kvöld þá fóru Lena og Hildur stundum út að labba og þær voru bara eithvað að labba og skoða þá komu strákar á sportbíl og þeir byrjuðu fyrst á því að syngja fyrir þær Ég er eins og ég er lagið og svo keyrðu þeir aftur fram hjá þeim og þá flautuðu þeir á þær;) Þá vinkuðu þær bara í þá:) Greinilega skotnir í þeim hehe;). Lena og Hildur komnar á séns með einhverjum gæjum:) Svo fórum vill öll til Reyðarfjarðar, Borgarfjarðar-Eystri, Seyðisfjarðar, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Breiðdalsvík og við fórum í svo mikin malarveg að okkur stelpunum var orðið óglatt á leiðinni:( En það var mjög gaman að koma á svona nýja staði og skoða. Svo á Borgarfirði fórum við niðr'á höfn og sáum lunda og og fleiri fugla og þeir voru ekkert smá flottir:) Svo á heimleiðinni til Akureyrar fórum við í dýragarð og það var kona sem var bara með hreindýr í garðinum hjá sér og það var komin lítill kálfur ekkert smá sætur, svo voru kindur, hundur, gæsir og gæsarungar, endur, kanínur, álft og fleiri hreindýr það var ekkert smá gaman þarna nema fyrir utan malarveginn;) en veit ekki hvað ég á að skrifa meira.

Heyrumst, bæbæ. Kv Alma gella


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 23:39:17 / gellan

Hæ.......:)

 

Sorrý hvað ég er löt. Ég gleymi alltaf að blogga. En ég skal blogga núna. Á fimmtudaginn sem sagt þann 5. apríl fórum við 4 í sveitina til ömmu og afa:) Og við Lena fórum eiginlega beint í fjárhúsin til þess að gefa kindunum brauð:) Það var rosa gaman þar. En um kvöldið þá þurftum við að fara heim:(..... En svo á föstudaginn sem var núna þá horfðum við á X-factor og ég, Lena og mamma vorum allar svo spenntar af því að við héldum allar með Jógvani og hann vann jibbí hehe;) Ég, Lena og mamma við stóðum upp og öskruðum af því að við vorum svo glaðar að Jógvan vann, hann er bara  snillingur:). Svo á sunnudaginn á páskadaginn þá vöknuðum við Lena og byrjuðum að leita að páskaeggjunum, og mitt var í örbylgjuofninum og Lenu var í þvottavélinni hehe;) Góðir staðir mamma og pabbi hehe.   Kveð í bili bæ sætu(K)

Kveðja Alma Gella ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 19:50:56 / gellan

Hæhæ......;)

Hæ allir:)  OK ég skal blogga eithvað hehe;). Allt í lagi hér kemur smá blogg:Þ. Á miðvikudaginn eða 14 mars þá ætlaði 1-7 bekkur uppí fjall en það var lokað af því að það var svo mikið rok að ef við hefðum farið þá hefðum við fokið:( þannig að við vorum bara venjulegan dag í skólanum nema að við lærðum ekkert nema bara við kláruðum víkingana okkar sem við erum að gera. Og svo fórum við í leikfimi og við vorum sko bara í fötunum:):) og eftir daginn veiktist ég :(:cry: og var með 39 stiga hita og það var ekkert gott:( En er aðeins að jafnast núna sem betur fer. Held bara að ég verði inni alla helgina:S. Og Petra og Co ég sakna ykkar svoo mikið Love you(K).

 

Kv Alma veika:(


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 14:05:13 / gellan

Hæhæ.

Hæhæ allir.. Ég er sko lötust í heimi að blogga hehe:S jæja hér kemur þá smá  blogg frá mér. Á öskudaginn fórum við náttúrlega að syngja ég Hildur og Lena og við fengum alveg fullt af nammi:) og þegar að við vorum búnar þá fórum við öll fjögur, mamma, pabbi, ég og Lena til Akraness til ömmu og afa:), Og svo daginn eftir fórum við til Petru, Söru og Houcine og eða hann var að vinna:( En við fórum svo bara í Smáralindina og ég og Sara fórum í Veröldina okkar. Það var sko gg* gaman hehe. Söru fannst voða gaman að renna og svona. Svo fór ég í boltaland sem var í Veröldini og þá var Sara dálítið hrædd:cry: af því að ég sökk ofaní boltana:) það var gg* gaman hehe.

En nenni ekki meiru ÉG ER SVO GG* LÖT:)... bæbæ. Kv alma latasta


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 11:48:32 / gellan

Hæhæ......

Hæhæ. Sorry hvað  ég er búin að vera löt að blogga:S.. af því að nú er ég byrjuð aftur í skólanum:whut: og get ekki bloggað mikið:(.. allavega núna kemur smá blogg hjá mér.. 20 jan þá voru ég, Pétur og Heiða bekkjasystkyn mín að labba heim til mín úr skólanum og þá sá ég lítin sætan hvolp bara sem var búin að vera týndur í svona 1 og hálfan klukkutíma og við vorum alltaf að reyna að ná honum svo að við g´tum látið vita að við værum búin að finna hvolpin... og svo kom nágranni minn og við báðum hana að hringja í lögguna og láta hana vita og hún löggan sko hringdi í eigandan sem átti hundin og þá biðum við í svona 15 mínútur.. og svo koma eigandinn og sótti hundin og við vorum svo glöð að hafa fundið svona sætan og lítin hund:). Svo eftir það fórum við bara inn og lékum okkkur bara eithvað og svona...
En nennii ekki meiru er komin með verk í heindina;)bæbæ. Kveðja Alma lata

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Könnun
Er ég hrakfallabálkur hehe???